Ég hafði auðvitað heyrt mörgum sinnum minnst á Gyllta Köttinn þegar ég rölti þar við um daginn…alveg óvart með myndavélina mína um hálsinn.
Eins og sjá má er þetta skemmtileg Second Hand verslun og þar má fá flott föt á fínu verði, bæði nýtt og notað í bland og allskonar skart og fylgihluti.
Kúnnahópurinn er fjölbreyttur, konur á öllum aldri, vinstri og hægri týpur (ef svo mætti að orði komast ;)) sem allar eiga það sameiginlegt að leita út fyrir Kringluna í verslunarleiðangri.
HÉR er Facebook síða Gyllta Kattarinns og þar setja þær reglulega inn myndir af nýjum sendingum og fleira fínerí.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.