Ekki að ég sé að flytja en það er alltaf gaman að sjá hvað er í boði á fasteignamarkaðnum.
Ég snarféll fyrir þessari íbúð þó vandamálin eru tvennskonar: Íbúðin er aðeins með eitt svefnherbergi… og húsgögnin -þau fylgja ekki með.
En einstaklega ferskur og flottur stíll hjá fólkinu sem á þessa fallegu íbúð (ef hún er þá ekki seld) ég myndi t.d. gjarnan vilja eiga alla Eames stólana.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.