Þriðji Flóamarkaður Bíó Paradísar verður haldinn helgina 19. og 20. júlí næstkomandi!
Bíó Paradís mun hýsa reglulega flóamarkaði í sumar, líkt og síðasta sumar. Markaðirnir slógu í gegn í fyrra, voru vel sóttir og mikil og góð stemmning myndaðist.
Flóamarkaðir verða haldnir eftirfarandi dagsetningar: 19. og 20. júlí, og 9.-10. ágúst og er opnunartíminn frá 12- 17 þá daga.
Komdu á flóamarkað í Bíó Paradís á laugardaginn og gerðu góð kaup á notuðum fötum, vínylplötum, leikföngum, bókum og öðrum gersemum!
Veitingasalan verður að sjálfsögðu opin og hægt verður að gæða sér á brakandi bíópoppi eða fá sér rjúkandi kaffibolla, ískalda kók eða bjór á meðan maður gramsar í öllu dótinu.
Nánar um viðburðinn hér á Facebook.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.