Leikkonan Reese Witherspoon og eiginmaður hennar Jim Toth (41) voru handtekin síðastliðinn föstudag en Jim er grunaður um að hafa keyrt undir áhrifum.
Bíllinn sem Jim ók hafði verið að flakka á milli akreina og lögreglunni fannst aksturslagið vera ansi furðulegt þannig að hún ákvað að stöðva bifreiðina og láta Jim blása í áfengismæli en hann var einnig látinn gera ýmsar kúnstir sem lögreglan í Bandaríkjunum lætur fólk framkvæma þegar henni grunar fólk um ölvun við akstur eins og til dæmis að labba beint á línu.
Reese fannst þetta alls ekki nógu gott og brást mjög illa við, hún öskraði og lét öllum illum látum við lögregluna og á endanum var hún einnig handtekin fyrir óspektir og slæma hegðun gagnvart lögreglunni.
Leikkonan var sumsé alls ekki sátt við það að vera handtekin og spurði lögreglumennina ítrekað hvort þeir vissu hver hún væri og hvort þeir vissu hvað hún héti en þeir létu sem ekkert væri og svöruðu henni neitandi. Þá svaraði Reese; “Þið komist fljótlega að því hver ég er”!
Hjónin voru bókuð og látin sitja í smástund í fangaklefa en síðan látin laus, þau eiga að mæta fyrir rétt í dag en biðja örugglega um frestun á því vegna þess að leikkonan er í New York að kynna kvikmyndina Mud en þau eiga að koma fram fyrir réttinum í Atlanta þar sem þau voru handtekin.
Sykursæta leikkonan sem margir dýrka og dá bara handtekin og með skæting! Kemur þetta á óvart?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig