Rauðar leðurbuxur eru nýjasta trendið og æ lof it !
Skvísur eins og Victoria Beckham og Kate Moss hafa sést klæddar í rauðar leðurbuxur.
Ég veit að það eru margar konur sem myndu ekki einu sinni hætta sér í svartar leðurbuxur, en kommon – þú lifir bara einu sinni!
Mér hefur reyndar ekki enn tekist að finna rauðar leðurbuxur á viðráðanlegu verði. En fyrir þá sem eiga fullt af peningum þá eru buxurnar frá Balmain og Isabel Marant æði!
Ég bíð spennt eftir að Topshop eða Zara komi með hinar fullkomnu rauðu leðurbuxur – ég verð fyrst á staðinn!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.