Rashida Jones hefur fengið nóg af fáklæddum stallsystrum sínum í Glysborginni og segir þeim til syndanna!
Á Twitter reikningi sínum “hashtag-aði” Rashida: #stopactinglikewhores eða hættið að haga ykkur eins og hórur!
Síðar sagði hún: ,,Bara til að hafa allt á hreinu þá er ég ekki að skamma neinn eða gera lítið úr neinum eða neinni sem vill gera það sem hún/hann vil gera við líkamann sinn EN ég held samt að við þurfum ÖLL að líta í eigin barm og skoða það sem okkur finnst eðlilegt.”
Hún sagði einnig: ,,Það er heil kynslóð af ungum konum sem fylgist með, vertu SEXÝ en skildu samt eitthvað eftir fyrir ímyndunaraflið!”
Þetta eru orð að sönnu hjá þessari flottu leikkonu en það virðist sem ekkert sé orðið heilagt í dag. Því meiri nekt eða annað sem hneykslar-því betra!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig