Leikkonan sykursæta Rachel Bilson sem flestir þekkja úr þáttunum The OC er að slá í gegn í þáttunum Hart of Dixie um þessar mundir.
Rachel er trúlofuð Star Wars leikaranum Hayden Christensen og segist elska að elda handa honum uppáhaldsmatinn hans. Já, henni finnst fátt betra en að hafa tilbúinn mat handa honum þegar hann kemur heim úr vinnunni en hún segist finna sig vel í eldhúsinu.
Leikkonan reynir eftir fremsta megni að vera frábær kærasta en hún segir einnig að Hayden sé hennar besti vinur og hún setji sambandið þeirra alltaf í fyrsta sæti. Til að heilla Hayden upp úr skónum segir Rachel að það sé auðvelt, strákar þurfi að hafa allt fyrir augunum þannig að þröngur stuttur kjóll slær alltaf í gegn.
Racel og Hayden hafa verið trúlofuð síðan 2008 og eru ekki enn gengin upp að altarinu en sú snoppufríða segir að hún sé komin með hugann við barneignir núna og hún vonar að þau verði það heppin í náinni framtíð að eignast börn saman.
Að sögn Rachel blundar í henni rappari sem þráir að brjótast fram… já, kannski að hún byrji bara að rappa ef leiklistinn bregst? Það væri ekki amalegt.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig