Hvernig væri að útbúa rabarbaramúffur með engiferi á þessum fallega sumardegi?
Nú teygir glæsilegur og girnilegur rabarbari sig til himins í görðum landsmanna.
Víða er hann orðinn hár og vel þroskaður og þá er ekkert annað að gera en að nýta hann til matargerðar eða í bakstur.
Fyrir mér er fyrsta rabarbarauppskeran kærkominn sumarboði og eftirvænting ríkir jafnan á meðal ungviðisins þegar til stendur að rífa hann upp enda rabarbarinn eitt það fyrsta sem nýtist á sumri hverju úr náttúrunni.
Hér er uppskrift að sumarmúffum sem gaman er að bera á borð úti í garði eða taka með sér í lautar- eða gönguferðina í blíðviðrinu. 12.stk.
- 4 dl hveiti
- 2 tsk. lyftiduft
- 1 dl sykur
- örlítið salt
- 1-2 tsk. engifer, malað (eftir smekk)
- 2 egg
- 3 msk. hrein jógúrt
- 1 dl olía, t.d. grænmetisolía, eða brætt smjör
- 1 ½ dl rabarbari, smátt skorinn
- 1 tsk. kanilduft
Blandið hveiti, lyftidufti, sykri, salti og engiferi saman. Hrærið vel saman í annarri skál eggjum, jógúrti og olíu. Blandið síðan saman við þurrefnin. Kanil er blandað saman við smátt saxaðan rabarabarann og ríflega helmingnum af honum er bætt út í deigið. Skiptið síðan deiginu í 12 múffuform og setjið afganginn af rabarbaranum ofan á. Bakið í 20 mínútur við 200 gráður. Látið múffurnar kólna áður en bornar fram.
NJÓTIÐ!
Rósa starfaði um árabil sem blaða- og fréttamaður lengst af hjá fréttastofu Stöðvar tvö og Bylgjunnar. Hún hefur skrifað um mat og matargerð í ýmis blöð og tímarit, þar af í rúman áratug fyrir Gestgjafann. Rósa gaf út sína fyrstu matreiðslubók, Eldað af lífi og sál, haustið 2009. Nú starfar Rósa við ritstörf hjá Bókafélaginu og er bæjarfulltrúi í Hafnarfirði.