Ástralska leikkonan Portia De Rossi sem sló svo eftirminnilega í gegn sem lögfræðingur í þáttunum Ally McBeal ræðir opinskátt um hjónaband sitt í viðtali við tímaritið Out Magazine.
Portia segir að þær Ellen séu búnar að komast að því að þær langar ekki í börn og börn eru alls ekki inn í framtíðaráætlunum þeirra. Portia segir að þegar fólk komist á þrítugsaldurinn þá komi viss pressa um að eignast börn og þegar þær Ellen voru á þessum aldri þá uppgötvuðu þær að þeim hreinlega langaði ekki í börn og ákváðu því að sleppa því alfarið.
Leikkonan fagra segir að þær hafi fundið það hjá sér að hjartað vildi annað en barneignir og að hennar mati er það stórt hlutverk að vera foreldri og ef þú ætlar ekki að gera það heilshugar þá sé betra að sleppa því. Þær eiga þó fullt af dýrum sem þær segjast hvorugar getað lifað án og þær eru þekktar fyrir að spilla frændsystkinum sínum rækilega.
Ellen (55) hefur slegið í gegn með spjallþáttinn sinn og þátturinn er núna á sínu tíunda tímabili en vinsældirnar virðast aukast með hverju árinu sem líður.
Portia segir að ástæðan fyrir því að þær séu svona lítið í slúðurblöðum sé einfaldlega sú að það er ekkert drama í kringum þær eða í hjónabandinu sjálfu. Þær séu yfir sig ástfangnar og þær hafi aldrei verið jafn hamingjusamar og núna.
Portia og Ellen giftu sig árið 2008 og hamingjan hreinlega skín af þeim núna en þær eru nýkomnar heim frá Ástralíu. Portia er þaðan og þær fengu frábærar og hlýjar móttökur hvert sem þær fóru þessar elskur.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig