Billboard verðlaunahátíðin fór fram nú fyrir skemmstu og mættu stjörnurnar í sínu fínasta pússi á rauða dregilinn.
Í tilefni af því að nú keppa ótal Evrópubúar um efstu sætin í Eurovision er tilvalið að birta nokkrar myndir af helstu poppurum heims í dag.
Adele fékk flest verðlaunin á Billboard hátíðinni (smelltu hér fyrir myndband) eða tólf samtals og popp/elektró skemmtistuðhljómsveitin LFMAO fékk sex verðlaun. Meðal þeirra sem komu fram á hátíðinni var Katy Perry, sem bauð ömmu gömlu með, og fyrrverandi Idol stjarnan Carrie Underwood.
Tískan á rauða dreglinum var ansi skrautleg og hér fyrir neðan má sjá myndasafn af nokkrum stjörnum.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig