Pjattrófubloggið er eins árs í dag! Við byrjuðum að blogga fyrir ári og virðumst bara fá fleiri lesendur með hverjum deginum sem líður þannig að nú er útilokað að leggja árar í bát…
… enda engin ástæða til -okkur finnst þetta meiriháttar skemmtilegt og frábært að þér finnist síðan okkar skemmtileg líka. Vííí 🙂
Í afmælisgjöf langar okkur bara að fá fleiri vini á Facebook og kannski link á bloggið þitt. -Sharing is caring- eins og konan í Kaliforníu sagði. xxx
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.