Pjattrófurnar og Forval auglýsa eftir 6 konum sem langar að fá húðgreiningu sérfræðings og prófa vörur frá MARBERT sér að kostnaðarlausu.
MARBERT er heimsþekkt vörumerki, stofnað árið 1936 af tveimur konum í Þýskalandi þeim Margaritu og Bertu (ergo – MarBert) en önnur var snyrtifræðingur og hin efnafræðingur.
Í dag er unnið með bestu hráefni sem völ er á í gerð kremanna og reynt er að hafa allt sem lífrænast.
FORVAL leitar nú að sex konum sem vilja taka þátt í að kynnast þessari snyrtivörulínu.
Ef þú tekur þátt í þessu með okkur áttu kost á að fá húðgreiningu hjá snyrtifræðingi og ‘skincare’ línu frá MARBERT sem hentar sérstaklega fyrir þína húðgerð.
Þær sem verða fyrir valinu eiga svo að nota vörurnar í 4-5 vikur og eftir það verður árangurinn metinn.
Á eitthvað af þessu við þig?…
1. PURA CLEAN línan er fyrir allan aldur, allar sem eru að berjast við feita og óhreina húð. Vörur línunnar draga úr bólgumyndun en Pura Clean línan inniheldur hreinsifroðu, hreinsivatn, krem fyrir feita húð og coverup stick sem sótthreinsar húðina og þurrkar upp óhreinindi.
VIÐ LEITUM AÐ KONU/STELPU MEÐ FEITA OG ERFIÐA HÚÐ (BÓLUR). ALDUR SKIPTIR EKKI MÁLI.
2. NO MORE RED Eins og nafnið No More Red gefur til kynna draga áhrif kremsins úr roða húðarinnar, mýkir hana og gefur róandi tilfinningu. Í línunni er krem fyrir venjulega til blandaða húð, fyrir þurra og sprungna húð og krem sem nefnist No More Red Comfort cover cream með anti couperose effect en það krem er notað eins og hyljari eða grunnur og við notkun dregur það úr roða í húðinni.
VIÐ LEITUM AÐ KONU SEM ER MEÐ ÞURRA HÚÐ, ROÐA OG SPRUNGIÐ HÁRÆÐANET.
3. MULTI ACTIVE CARE línan dregur úr fyrstu einkennum öldrunar, endurnærir húðina og dregur fram ljóma hennar á ný. Frábær lína sem inniheldur breytt vörusvið, dagkrem, maska, vítamínkrem og fleira.
VIÐ LEITUM AÐ KONU Á ALDRINUM 25-35 MEÐ ÞURRA HÚÐ SEM ÞARF NÆRINGU OG VIÐGERÐ.
4. PHYTO CELL línan er fyrir konur á aldrinum 50+ Ef konan hefur gengið í gegn um miklar hormonabreytingar eða lyfjagjöf einhversskonar er mjög gott að nota þessa línu til að byggja upp húðina eftir veikindi.
Konur með krabbamein hafa til dæmis notað vöruna með frábærum árangri.
VIÐ LEITUM AÐ KONU Á ALDRINUM 50+ EÐA KONU SEM HEFUR GENGIÐ Í GEGNUM VEIKINDI OG ÞARF AUKNA NÆRINGU FYRIR HÚÐINA.
5. SENSE COMFORT línan er fyrir rviðkvæma húð. Hún er án paraben efna, styrkir húðina og gefur henni þéttleika.
VIÐ LEITUM AÐ KONU Á ALDRINUM 20+ MEÐ OFURVIÐKVÆMA HÚÐ.
6. PRO FUTURA línan er fyrir allar húðgerðir kvenna á aldrinum 40+ en hún er mjög stinnandi og rakagefandi og kemur í veg fyrir öldrunareinkenni.
VIÐ LEITUM AÐ KONU Á ALDRINUM 40+ SEM ER BYRJUÐ AÐ SJÁ MERKI ÖLDRUNAR Á HÚÐINNI.
Til að taka þátt skaltu fara á FB síðuna Pjattrófanna, ‘læka’ statusinn og skrifa hvaða vörulínu þú telur eiga við þig. Við drögum út nöfn þeirra heppnu eftir nokkra daga og þú færð húðgreiningu og vörur hið fyrsta hjá snyrtifræðingum Forvals.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.