Stelpurnar sem eru með Filodoro og Pjattrófurnar ætla að vera í samstarfi með smá leik sem gengur út á að finna nýtt slagorð fyrir þessar fínu sokkabuxur.
Það sem þú þarft að gera er að senda okkur þína tillögu að slagorði, (mátt senda fleiri en eitt), merkta “slagorð” ásamt nafni og símanúmeri á pjattrofugjafir@eyjan.is og bíða svo spennt eftir úrslitunum sem við birtum strax í næstu viku.
Sú sem kemur með bestu tillöguna getur valið sér, já haltu þér, 10 pör af sokkabuxum eða sokkum (eða bæði) frá Filodoro!
Semsagt, sokkabuxnabirgðir sem ættu að duga út veturinn og meira til en nú er von á flottri haust og vetrarlínu frá þessu merki. T.d. litaðar sokkabuxur, lærasokkar, hnésokkar, leggings, sexý blúndusokkar og sitthvað fleira en svo er líka hægt að velja standard aðhaldssokkabuxur og annað beisikk. Þú ræður. Þetta er eins og inneign upp á c.a. 50 þúsund í sokkabuxnabúð 🙂
Svo fá næstu fimm sætin fyrir neðan að velja sér annaðhvort tvenn pör af sokkabuxum, eða sokkum (eða eitt af sokkum og annað af sokkabuxum). Þannig að það eru FIMM heppnar skvísur sem fá eitthvað flott um leggina sína.
Nú er um að gera að virkja skáldagyðjuna og sköpunarkraftinn innra með þér og senda okkur línu með tillögu. Ef þitt slagorð slær í gegn þá gæti verið að þú ættir eftir að sjá það á auglýsingaskiltum um allann bæ í framtíðinni.
Hér koma tillögurnar okkar…
Ok, kannski spes tillögur en það erum að gera að láta hugann reika þar til maður dettur á eitthvað snjallt.
PS. Svo er ógó næs að sjéra þessum link um allt Facebook svo að sem flestar taki þátt. Við Filodórur værum til í að sjá svona 50 tillögur.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.