Lancomé kom á markaðinn með nýjan ilm á þessu ári. Ilmurinn heitir Trésor Sheer og er hreint unaðslegur.
Ef þú ert eins og ég, og fílar vanillu, musk og aðra milda, kvenlegar ilmi þá er Trésor Sheer eitthvað fyrir þig. Hann er dásamlega mildur og rómantískur og aldrei of þungur en samt seiðandi og ljúfur. Fullkomnun í fallegri flösku.
Framleiðendur lýsa þessu sem: Fáguðum, púðukenndum og rómantískum ilmi. Hann einkennist af mýkt rósarinnar og fresíunni en musk og sandalviður spila þó aðalhlutverkin.
Stemmningin yfir þessum ilmi minnir mig sannarlega á eitthvað rómantískt svipað og maður sér í þessari auglýsingu. Hann er jafnframt hreinn og silkimjúkur og kvenlegur eins og Kate Winslet.
Skora á þig að finna lyktina af Trésor næst þegar þú ert í verslun sem selur ilmvötn. Mér finnst þetta svo góð lykt að ég er með glasið á skrifborðinu mínu og sé til þess að ég finni þessa vægu angan allan daginn. Enda hefur það svo góð áhrif á sálina.
Lancome Trésor Sheer kostar ca 9300 kr
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.