Konur eru mjög lyktnæmar verur og þær nota nefið að stórum hluta við leit sína að rétta makanum. Þannig að þegar karlmaður ætlar að finna rétta ilminn fyrir sig þá veit hann að hann er réttur ef hann kveikir í konunni… og ef hann á ekki konu þá getur hann beðið vinkonur sínar um álit.
Mér finnst Diesel ilmurinn ONLY THE BRAVE vera mjög karlmannlegur og sexý. Glasið er líka sjúklega töff!
ONLY THE BRAVE ber keim af sítrusblómum, mandarínu og kóríander og undirtónninn er djúpur leður og viðarilmur sem undirstrikar karlmennsku og fær konur til að kikna i hnjáliðunum.. eða allavega fæ ég aðeins í hnén þegar minn maður er með ilminn.
Only the Brave er ilmur fyrir hugrakka, sjálfstæða karlmenn. Þú veist. Svart-hvítu hetjurnar sem við fílum svo vel…
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.