Söngkonan Pink er þekkt fyrir það að stíga vel út fyrir rammann og fylgja sinni eigin sannfæringu.
Þau eiginmaður hennar Corey Hart eru svo sannarlega ekki “venjuleg hjón” ef að svo að orði mætti komast því þau ferðast saman á mótorfákum og njóta þess í botn að vera ofursvalir töffarar í leðurjökkum!
Pink virtist skemmta sér konunglega á hjólinu sínu en hún er mikil mótórhjólastelpa og bað meira að segja Corey að giftast sér þegar þau voru á mótorhjólakeppni. Þar hélt hún uppi skilti sem á stóð “Viltu giftast mér”.
Hjónin hafa verið gift í sjö ár og eiga litla stúlku saman. Eftir mótorhjólatúrinn skelltu þau sér síðan í smá afslöppun við sundlaugarbakkann með kampavín í hönd.
Ég veit ekki með þig en mér finnst Pink vera svakalegur töffari og tónlist hennar verður alltaf betri og betri með árunum!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig