Nú erum við flest dottin í páskafílinginn og hlökkum til að elda góðan mat, eiga góðar stundir með fjölskyldunni, opna páskaegg, lesa málshætti, spila spil og jafnvel horfa á góða mynd eða slappa af með góða bók.
Tímaritið Remodelista bað Gwyneth Paltrow var beðin að skreyta fyrir páskana og leggja á borð fyrir lesendur.
Gwyneth fór hefðbundnar leiðir fyrir páskaskreytinguna og valdi hvíta, bláa, fjólubláa og fölbleika liti með dassi af svörtu í skreytingarnar.
Mér finnst þetta bara reglulega smart hjá leikkonunni.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.