Það vantaði ekkert upp á stuðið í þriggja ára afmælispartý Sushisamba sem haldið var upp á fyrir nokkrum dögum.
Fastagestir, vinir og vandamenn staðarins mættu og gerðu sér glaðan dag, dönsuðu og sungu og höfðu það skemmtilegt en Logi Pedro Stefson hélt uppi stuðinu með sínum exótíska og einstaklega fagmannlega hætti.
Ljúfir kokteilar og djúsí sushi rann ofan í gestina en eins og flestir sem hafa einu sinni komið á Sushisamba vita eru þeir hálfgerðir íslandsmeistarar í að hrista saman ómótstæðilega góða kokteila.
Tékkaðu á þessu myndbandi! Erum við að tala um sexý drykk? JÁ! Þessi verður blandaður í kvöld!
[youtube]https://www.youtube.com/watch?v=XJvb1lO_-lU[/youtube]
Hér geturðu skoðað fullt af myndum úr þessu girnilega partý… Áfram Sushisamba! Góður staður, gott stuð!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.