Á morgun, föstudag, á milli 17-19 ætla stelpurnar hjá snyrtistofunni Mizú í Borgartúni 6. að bjóða upp á rautt og hvítt ásamt nokkrum súkkulaðimolum og fíneríi.
Þær ætla að kynna hina frábæru nýju meðferð Dermatude sem er það nýjasta í andlitslyftingu í dag og ýmislegt annað sem vert er að kíkja á fyrir allar Pjattrófur.
Happadrætti verður á staðnum og dregið verður úr veglegum vinningum, Margrét frá heildversluninni Óm mætir með hágæða förðunarvörur beint frá Milano og vefverslunin Skeggi.is kíkir í heimsókn og sýnir frábæra og skemmtilega hluti.
Tilvalið tækifæri til að byrja á jólainnkaupunum snemma en það verða fullt af flottum tilboðum fyrir þau sem mæta á staðinn.
Hér má svo sjá viðburðinn á Facebook.
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.