Þær eru varla búnar að ganga frá eftir síðustu veislu þegar boðað er til þeirrar næstu!
Stelpurnar á Snyrtistofunni Garðatorgi héldu glæsilegt boð fyrir viðskiptavini og vinkonur fyrri hluta síðasta mánaðar en næsta fimmtudag er aftur blásið til leiks og nú verður boðið upp á jólaglögg, gjafabréf og flotta afslætti sem koma sér vel fyrir jólin (sjá nánar í myndasyrpu).
Jólaglöggin er árlegur viðburður á stofunni en þá koma saman glæsidömur úr Garðabæ og aðrir velunnarar stofunnar góðu. Hér er hinvegar samantekt úr síðasta boði sem var haldið af því tilefni að snyrtistofan var stækkuð með frábærum árangri. Nú er hún bæði lítil og kósý en bara aðeins meira af þessu litla og kósý. Við bíðum svo bara spenntar eftir myndum úr næstu veislu.
Kannast þú við einhverja skvísu á myndunum?
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.