Sjaldan hafa jafn margar tískuáhugakonur komið saman á einn viðburð eins og þegar ELLA, Oroblu, Grand Marnier og L‘Oréal frumsýndu haustvörur sínar nú í lok september.
Kvöldið hófst með glæsilegri tískusýningu þar sem keppendur Elite sýndu glæsilegan fatnað úr haust- og vetrarlínum ELLA og OROBLU, ásamt því að vera farðaðar með haust- og vetrarlitunum frá L‘Oréal. Elínrós Líndal var listrænn stjórnandi tískusýningarinnar og Sóley Kristjánsdóttir var gestgjafi kvöldsins. Boðið var upp á Viskí smökkun og sigurkokteilinn úr Grand Marnier keppni 2012 sló í gegn við ljúfa tóna frá DJ Natalie & DJ Margeir.
Myndirnar lýsa stemmningunni baksviðs vel og óhætt er að segja að Ísland státi enn af fallegustu konum heims eins og oft hefur verið sagt, að minnsta kosti gefa myndirnar ekki annað til kynna…. sannkallað pjattrófupartý!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.