Síðasta föstudagskvöld stóð Smirnoff fyrir teiti á glæsilegu nýju Icelandair Hótel Marína til að þakka öllum sem komu að vel heppnaðri RFF tískuviku á Íslandi.
Smirnoff kynnti þar í leiðinni samstarf sitt við Madonnu en innan skamms munu Madonnu Smirnoff flöskur verða til sölu í Fríhöfninni á Íslandi. Einn heppinn gestur var dreginn úr potti og hlaut hún tvo miða á tónleika með Madonnu í Kaupmannahöfn ásamt flugi og hóteli.
Þess ber að geta að þeir sem festa kaup á Madonnu Smirnoff flöskunni í fríhöfninni fara einnig í pott og eiga kost á sama vinningi.
Gríðarlegt fjör var í teitinu en þar sá DJ Margeir um að skemmta gestum ásamt söngsystrunum Sísy Ey (dætur Eyþórs Gunnars og Ellenar Kristjáns) Hanastélin voru ekki af verri endanum, Smirnoff jarðaberja og basilikum kokteill sló í gegn og verður klárlega einn heitasti drykkurinn í sumar.
Í meðfylgjandi myndskeiðum og myndasafni má sjá herlegheitin og fólkið:
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=BgyyxjEdqiU&feature=youtu.be[/youtube]Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.