Ég veit ekki alveg hvað millinn Paris Hilton var að pæla þegar hún fór í þessar buxur um morguninn en kannski hefði hún átt að hugsa sig tvisvar um?
Stundum borgar sig að vera í pilsi þó dama sé með laglega leggi og lögulegan botn. Öllu má ofgera. Og þá er líka nokkuð skynsamlegt að fara í nærbuxur þó að það sé hlýtt í Hollywood. Sérstaklega ef þú ert með papparassa á pinnahælunum allann daginn.
Mér finnst bolurinn hennar samt fínn, og mamma hennar er glam og í hrikalega flottum stígvélum.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.