Paris Hilton keypti sér nýjan bíl í vikunni, svartan McLaren 650S Coupe og kostaði bíllinn, já haltu þér þú, á bilinu… 35-40 milljónir kr!
Paris sást ná í nýja bílinn sinn á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga í bílaumboði í Beverly Hills, Los Angeles.
Hótelerfinginn og Chihuahua-hundurinn hennar, Peter Pan, eyddu svo restinni af deginum í verslunarráp í Beverly Hills.
Gott að eiga ríka foreldra
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.