Paris Hilton varð fræg á einni nóttu þegar hún birtist heiminum í grænleitri birtu, kviknakin að stunda kynlíf með fyrrum vini sínum Rick.
Hún fékk ekki aur á staur en Rick Salomon, þáverandi kærasti hennar, fékk fleiri fleiri milljónir út úr þessu uppátæki.
Paris var 21 árs þegar upptökurnar voru gerðar en hún fékk ekki að sjá þær fyrr en þau hættu saman. Þá lét Rick myndina ‘leka’ á netið.
Í viðtali við TMZ sagðist Paris ekki hafa fengið neitt út úr þessu: “Ég græddi ekki dollara, ekki einn einasta. Ég græði nóg af peningum eftir mikið fallegri leiðum. Til dæmis fæ ég nóg inn bara á ilmvatninu mínu. Ég þarf ekki að hafa áhyggjur af þessu.”
Umræðan fór aftur af stað eftir að Slóveníska vefsíðan ParisHiltonPornVideos.com fór í loftið en þar er grætt á umræddu myndbandi en réttinn að þessu myndbandi á klámmyndaframleiðandinn Vivid.
“Ég kann ekki við að fólk noti mitt nafn til að græða peninga, hvað þá þegar það er með þessum hætti,” sagði Paris sem hafði ekki hugmynd um síðuna fyrr en hún las um hana á TMZ.
Aðeins ári eftir að myndin kom fyrst fram hafði Rick grætt á henni um 10 milljónir dollara eða rúmlega milljarð íslenskra.
Þó að myndband þetta hafi komið Paris Hilton á stjörnukortið segir hún að þetta sé það eina sem hún virkilega sjái eftir að hafa gert um ævina. “Þetta er það neyðarlegasta og mest niðurlægjandi sem hefur gerst á ævi minni”.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.