Paris Hilton kom flestum fyrir sjónir sem ofurdekruð pabbastelpa í þáttunum “The Simple Life” þar sem þær Nicole Richie reyndu ýmislegt sem við ‘venjulega’ fólkið upplifum daglega.
Þrátt fyrir að hafa þurft að taka þátt í ýmsu í þáttunum segir Paris að hún hafi aldrei á ævinni þrifið klósett. Bara ekki í eitt einasta skipti. Þegar hún er spurð að út í salernisþrif segir hún bara “Hell No”. Paris fer heldur ekki út með ruslið, nema að það lykti illa og þegar jólin eru -þá er jú svo mikið af jólapappír og kössum sem þarf að henda strax!
Margar ungar skvísur í Glysborginni Los Angeles virðast vera að stíga út af sporinu og fyrir sumum fer ansi illa en Paris hefur náð að halda sér í þokkalegu jafnvægi með nokkrum mishöppum þó. Í dag er hún orðin DJ og sér um klúbbaskemmtanir og að koma fram hér og þar.
Þegar hún er spurð út í ungu dömurnar í Hollywood segir hún að sér finnist það afar sorglegt hvernig margar stelpur enda en sjálf segist hún ekki lifa af foreldrum sínum og þeir ekki af henni. Margar skvísur í Hollywood eru fyrirvinna fjölskyldunnar og að hennar sögn getur það skemmt mikið fyrir fjölskyldunni þegar ein sér um að halda öllum uppi með sínu framlagi.
Paris er einnig þakklát fyrir að eiga foreldra sem hafa hvatt hana til að vinna til að eiga í sig og á. Foreldrar hennar hafa alltaf kennt henni að framkvæmda og vinnusemi er gulls ígildi og þó hún beri Hilton nafnið þá þýði það ekki að hún fái allt upp í hendurnar.
Paris veit hvað hún syngur þegar kemur að vinnu og viðskiptum en hún hefur náð að selja persónu sína út á við og hefur það fjandi gott því hennar starf er að stilla sér upp fyrir ljósmyndara, ferðast um heiminn og halda góð partý “Paris Style”.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig