Pamela Anderson hefur alltaf átt frekar stormasamt ástarlíf alla sína tíð og samband hennar við Rick Salomon (46) er engin undantekning þar á.
Hjónin hafa verið saman ‘on and off’ í dágóðan tíma en þau endurnýjuðu hjúskaparheit sín síðast í janúar eftir að hafa skilið skiptum í einhvern tíma.
Ekki stóð það lengi því nú síðast í júlí lagði ofurskvísan aftur inn skilnaðarpappíra og vildi hætta með honum í annað sinn en það stóð ekki lengi heldur því hún hafði nýlega samband við dómara og bað hann að rífa þessa pappíra og henda þeim í ruslið.
Parið náði saman hjá frændum okkur dönum því þau eru búin að vera í köben síðustu dagana í góðu yfirlæti þar sem ástin hefur fengið að blómstra. Pamela er yfir sig hrifin af Rick, segir hann svo hjartahreinan og góðan. Hún treysti engum í heiminum nema honum og sonum sínum.
Nýlega birtist löng og skemmtileg grein hér á Pjattinu þar sem fyrrum kærasti Pamelu fór í myndaalbúmin sín og dró upp myndir af dömunni eins og hún leit út fyrir frægð, fegrunaraðgerðir og frama. Lestu hana hér.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.