Pamela Anderson er síst þekkt fyrir fágun og hófsemi þegar kemur að útlitinu en þessi Baywatch bomba hefur farið í ótal fegrunaraðgerðir, brjóstastækkanir, hárlengingar og svo mætti lengi telja.
Það er því sérlega skemmtilegt að sjá hana á þessum myndum sem voru teknar fyrir tísku og lista tímaritið No Tofu.
Á myndunum er Pamela í einskonar 1960’s gervi, lítið máluð og með hárið í Bob. Hún er fallega sólbrún og við förðunina hefur verið notað mátulega mikið af sólarpúðri ásamt bleikum varalit og neglurnar eru langar og hvítar. Augnförðunin er mild en ekki þessi svarti smokey sem við erum vanar að sjá hana með.
Taktu sérstaklega eftir augabrúnunum sem búið er að þykkja og samræmið í lit augabrúna og á hárinu hefur verið lagað en Pamela, líkt og margar skinkur, hefur ekki alltaf verið með það á hreinu að svartar mjóar augabrúnir gera mann ekki sætari.
Skvísan hefur þó hægt og rólega verið að ‘afskinkast’ örlítið með árunum. Ekki er langt síðan hún lét ljósu krullu lokkana fjúka en við bíðum spenntar eftir að plokkarinn hennar fái að gera það sama.
Áfram hátísku Pamela! Meira svona…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.