Þegar ég hef misst mig í brauðáti finnst mér nauðsynlegt að fá mér eitthvað létt daginn eftir eins og safa eða próteinsjeik.
Þar sem ég hef litla sem enga þolinmæði í eldhúsinu er ég mikið fyrir allt sem er einfalt, þægilegt og tekur ekki mikið meira en korter að útbúa.
Hér deili ég með ykkur einfaldri útfærslu af grænum detox-drykk sem inniheldur meðal annars spínat og engifer.
- 1 til 2 cm engiferrót
- Lúka af frosnu spínati
- Sirka bolli af frosnu mangói (fer í raun eftir því hvað þú vilt hafa drykkinn þykkan)
- 125 ml. appelsínu heilsusafi
- 125 ml. ískalt vatn
Saxaðu eða rífðu engiferrótina. Helltu safanum og vatninu í blenderinn. Bættu því næst frosna mangóinu og spínatinu við ásamt engiferrótinni og settu blenderinn í botn.