Þó að við heima séum oftast spenntust fyrir Óskarshátíðinni sjálfri eru margar stjarnanna spenntastar fyrir eftirpartýunum – og þá einna helst því sem tímaritið Vanity Fair heldur.
Kjólarnir eru oft ekki eins stórir og glæsilegir en stjörnurnar eru því fjölbreyttari og fleiri.
Það er alltaf jafn gaman að skoða myndirnar úr þessu partýi þó ekki sé nema bara fyrir það eitt að sjá hverjir þekkjast, hver er að skemmta sér og hverjum leiðist 😉
Hér að neðan má sjá gallerí með öllum kjólunum og myndum innan úr partýinu sjálfu:
__________________________________________
Tinna hefur brennandi áhuga á næstum öllu en þó líklega mest á sjónvarpi og kvikmyndum, án þess þó að hafa nokkurt faglegt vit á hvorugu.
Hún er nemandi í mannfræði og starfar með náminu sem samfélagsmiðlaráðgjafi. Hún elskar allt sem kemur eldamennsku og bakstri við, og þá mest af öllu að baka íslenskar pönnukökur og að poppa örbylgjupopp. Markmið Tinnu í lífinu er að vera góð, láta gott af sér leiða og skemmta sér frábærlega á meðan.