Ylfa Geirsdóttir diskódís, vöruhönnuður og fyrirsæta er ekki í vandræðum með að setja saman óskalista fyrir Pjattrófurnar
Hún leitar ekki langt yfir skammt þegar kemur að fríi og ferðalögum og myndi ekki slá hendinni á móti einum Cavalli á barnið.
Skórnir?
Mig er búið að dreyma um í mörg ár að eignast þessi “boots” frá Vivienne Westwood. Þau yrðu fullkomin við allt í fataskápnum mínum.
Fötin
Ég væri alveg til í að spóka mig um í þessum fallega sumarkjól frá Roberto Cavalli. Taskan og skórnir mættu líka alveg fylgja með.
Baðfötin?
Þessi kæmi sér vel í Vesturbæjalaugina.
Föt fyrir mini me (börnin)?
Að sjálfsögðu þyrfti litla daman líka að eiga einn Roberto Cavalli kjól.
Snyrtivaran?
Morange varaliturinn frá Mac er klárlega litur sumarsins á mínum bæ.
Drauma frístaðurinn?
Nýji uppáhálds staðurinn minn er Rauðasandur í Breiðafirði en þar var ég á ferðalagi fyrir stuttu. Algjör náttúruperla og yndislegt að vera þar.
Möst sumarsins?
Naglalökk í öllum mögulegum skærum litum.
Veitingastaðurinn?
Veitingahúsið við Tjörnina er uppáhálds. Ég hef verið þar með annan fótinn síðan ég var lítil og þykir afar vænt um stemminguna sem þar ríkir. Maturinn er líka dásamlegur.
Fylgihluturinn?
Ég væri alveg til í þessi sólgleraugu frá Ralph Lauren.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.