…einn svona lítinn kjöltugíraffa og er ég þá orðin ein af 772, 556,- þúsund manns sem langar ógurlega mikið í kjölturgíraffa.
Sagt er að á þessum búgarði séu pínkulitlir gíraffar ræktaðir, sem eru lítið stærri en kettir og hundar og að fullorðinn gíraffi á að ná aðeins 76 cm hæð og vega 4,5 kg.
Gefur honum bara vatn og laufblöð að éta.
Hótelerfinginn og djammdrottningin hún Paris Hilton á litinn chiuahua hund, Tinkerbell, sem fer með henni út um allt og passar svo vel í Louis Vuitton töskuna hennar. Leikarinn kynþokkafulli George Clooney átti eitt sinn svín sem gæludýr, því væri ekki svo galið að eiga lítinn kjöltugíraffa, bara ef þetta væri ekki lygasaga.
Sagt er að sá heppni sem fær nýjasta ófædda meðliminn sé ætlaður einhverjum prins en hann fær gíraffaungann í afmælisgjöf.
Þú getur fylgst með mömmunni Raina og pabbanum Bull, vafra um á milli útihúsa á vefmyndavélinni HÉR.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.