Ofurfyrirsæta er eiginlega vægt til orða tekið þegar kemur að brasilísku fyrirsætunni Gisele Bündchen.
Gisele var nýlent í Brasilíu með dóttir sína Vivian og þurfti nánast að fara strax á samkomu á vegum Oral B tannrisans. Gisele birti mynd af sér á Instagram síðu sinni þar sem hún sagði:
“What would I do without this beauty squad after the 15 hours flying and only 3 hours of sleep?’
Eða: “Hvað myndi ég gera án þessara snillinga eftir 15 tíma flug og aðeins 3 tíma svefn?
Það var samt sem áður ekkert stress í kringum Gisele þar sem að allir voru rólegir og Vivian litla kippti sér ekkert upp við það að mamman væri í förðun, greiðslu og handsnyrtingu á meðan hún fékk sér að borða.
Gisele birti einnig nýlega mynd af sér og Vivian í jóga og sú mynd hefur fengið mörg “like” á Instagram.
Það er greinilegt að Gisele elskar að vera mamma og vil hafa börnin sín nærri sér þrátt fyrir að sinna ýmsum verkefnum út um allan heim.
Nóg er að gera hjá fyrirsætunni um þessar mundir en hún gaf nýlega út nærfatalínu sem hún hannaði sjálf.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig