Skór með yfirþyrmandi blómamynstri, skrauti og furðulegum hælum eru ekki skór sem við erum vanar – en mí lækí!
Irregular Choice er flott skómerki með öðruvísi skó – alveg allt öðruvísi en maður er vanur. Það eru sko engir svartir pinnahælar og fermingarskór hjá þeim.
Hvert skópar er eins og listaverk – svona svolítið GaGa-lú eins og Perez Hilton slúðurkóngur myndi orða það. Skórnir eru ekki ódýrir en alls ekki svo dýrir að maður þurfi að selja sál sína fyrir eitt par.
Skoðaðu meira úrval HÉR
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.