Tom Cruise og Katie Holmes eru að skilja. Lögfræðingur Katie hefur greint bandarískum fjölmiðlum frá málinu!
Parið gifti sig árið 2006 og saman eiga þau hina sex ára gömlu Suri.
Talsmaðurinn segir þetta einkamál Katie Holmes og fjölskyldu hennar og tekur fram að hagur dóttur þeirra sé efstur á forgangslistanum.
Síðar sendi hann aðra fréttatilkynningu sem greindi frá því að Katie hefði sótt um skilnað og að Tom væri ákaflega dapur. Hann einbeitti sér nú að börnunum sínum þremur. Lögmaðurinn bað fjölmiðla að gefa fjölskyldunni grið.
Þetta er þriðji skilnaður Tom Cruise en hann hefur áður verið giftur þeim Mimi Rogers og Nicole Kidman. Með þeirri síðarnefndu á hann tvö börn.
Nýjasta myndin hans, Rock of Ages, var frumsýnd í London á dögunum en parið er bara nýlega farið héðan af landi þar sem þau voru saman við tökur á kvikmynd. Einnig voru fréttir af því að Tom vildi halda upp á fimmtugsafmælið sitt hérna en hvort verður af því er harla ólíklegt.
Katie hefur oft sést með Tom á rauða dreglinum og hefur vanalega fylgt honum í tökur og annað. Leikarinn vakti sérstaka athygli í þætti Opruh Winfrey þegar hann stökk upp í sófa og játaði Holmes ást sína með miklum látum.
Papparassar hafa fylgt þeim um hvert fótmál og Suri litla hefur fengið sérstaka athygli. Það má reikna með því að látunum linni ekki þrátt fyrir beiðni talsmannsins um að sýna þeim tillit í skilnaðarmálinu.
Að sögn TMZ eru þau búin að gera kaupmála en samanlagt eiga þau eignir upp á 36 milljarða. Vó!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.