Nýjasta myndband Lady Gaga er nú loks komið út eftir að aðdáendur hennar hafa biðið óþreyjufullir í nokkurn tíma. Myndbandið er við lagið ´Alejandro´…
…það er óhætt að segja að þetta nýja myndband sé mjög ögrandi og toppar klárlega hin myndbönd hennar í grófleika. Persónulega finnst mér það fara aðeins yfir strikið og það er ekki beint jafn skemmtilegt og hin myndböndin hennar, frekar litlaust og pínu kjánó á köflum (hún með skálaklippingu að dansa með her af mönnum sem eru líka með skálaklippingu…jebb).
Sjálf segir Lady Gaga að þetta sé til heiðurs samkynhneigðu vina sinna sem hún dáist að. Lady Gaga er eina konan sem kemur fram í myndbandinu en það vantar ekki karlmennina í það sem sjást margir í hælaskóm uppi í rúmi.
Það er Steven Klein sem leikstýrir þessu nánast svart-hvíta myndbandi sem mun öruglega fara fyrir brjóstið á mörgum.
Hér getur þú horft á þetta tæplega 9 mínútna (já NÍU mínútna) langa myndband…
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.