Shiseido Bio-Performance Advanced Super Restoring kremið er öflugt krem sem berst gegn öldrun húðarinnar
Kremið vinnur gegn hrukkumyndun, hjálpar til að slétta úr fínum línum og djúpum hrukkum svo sýnilegur munur er aðeins örfáum dögum eftir að þú byrjar að nota það. Það sem Super Restoring kremið gerir líka er auka teygjanleika húðarinnar, mýkja og næra.
Viku eftir að þú byrjar að nota kremið bæði kvölds og morgna er sýnilegur munur á fínu línunum í andlitinu. Húðin er stinnari, mýkri og með fallegum ljóma sem við viljum allar halda í sem lengst.
Mánuði eftir að þú byrjar að nota kremið þá sérðu mikinn mun á húðinni. Hún hefur öðlast styrkleika þannig að hún lyftist og þú sérð mikinn mun á fínu línunum í andlitinu svo ég tali nú ekki um djúpu hrukkurnar milli augnanna og kringum munnsvæðið.
Shiseido eru háþróaðir í kremum og hafa margra ára reynslu að baki sér við að búa til góð lúxus krem sem hjálpa húðinni að halda ungleika sínum sem lengst… hvaða kona vill það ekki?
Kremið er unnið úr epla laufblöðum sem hjálpa húðinni gegn öldrun. Formúlan er mjög rakagefandi og eykur upptöku súrefnis í húðinni svo að betur gengur að auka á virkni kremsins.
Shiseido Bio-Perfomance Advanced Super Restoring er lúxus krem. Nú hef ég notað það í nokkrar vikur og er svo ánægð. Segi kannski ekki að ég líti út fyrir að vera tvítug en húðin mín tók stakkaskiptum þegar ég byrjaði að nota kremið. Ég sá hreinlega fínu línurnar hverfa, húðin varð silkimjúk og hreinlega ljómar. Kremið er eitt af mínum uppáhalds snyrtivörum og mæli ég 100% með því! Þú verður ekki svikin af þessu frábæra og einstaka kremi!
Eins er gott að vita fyrir þær sem vilja ekki einungis hugsa vel um húðina á sér þá er gott að vita að allar umbúðir frá Shiseido eru umhverfisvænar. Mjög auðvelt er að skella þeim í endurvinnslu en hægt er að taka umbúðirnar í sundur og flokka efnin á þann stað sem þær eiga heima á. Algjör snilld!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.