Hér er brakandi ferskt myndband með Katy Perry. Einstaklega litríkt og hresst. Vaknar á laugardagsmorgni með sogblett á hálsinum og man ekki hvað gerðist kvöldið áður.
Fer í smá makeover og slær í gegn… eldhress í sumarskapi. Ætli þetta sé ekki það sem kallast sumarsmellur? Eða eins og gamla konan sem hringdi inn á Rás 2 árið 1987 spurði: “Hvað eruð þið alltaf að tala um sumars mellur”? 😉
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=D-r5ZmctklM[/youtube]
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.