Íslensku stelpurnar í The Charlies hafa dvalið í Los Angeles síðan 2010 í þeim tilgangi að reyna “meika það” eins og sagt er.
Þær hafa töluvert unnið í ímynd sinni og breytt henni fram og tilbaka en nú eru þær enn á ný komnar með nýtt myndband og munu koma með nýja plötu fljótlega. Stelpurnar hafa einnig “ameríkaniserað” nöfn sín og kalla sig nú Alma Goodman, Klara Elias og Camilla Stones. Segja má að mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan þær voru saklausu stelpurnar í Nylon og keppast þær nú við að vera fáklæddar, sexí og töff. Það virðist vera eina leiðin til að meika það í Hollívúdd. Eða hvað?
Það verður ekki af þeim tekið að þær eru hörkuduglegar og leggja mikið á sig fyrir frægð og frama en eins og sjá má á meðfylgjandi myndum af þeim með einkaþjálfaranum þá eru þær í svaka formi með öfundsverðan “sixpakk”.
Pjattið vonar að Charlies fái nú drauma sína uppfyllta með næstu plötu – og ef ekki, þá gengur bara betur næst 😉
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=ZXI8lljV1Vs[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.