Stylestalker er ástralskt merki sem tvær ungar stelpur eiga heiðurinn að.
Það er frekar nýtt, eða frá 2008 en hefur samt náð nokkrum vinsældum síðan það var stofnað…
…Ég rakst á skemmtilegt vídjó frá þeim sem að sýnir þeirra nýjasta nýtt sem eru meðal annars hippalegir kjólar, munstróttar blússur, kjólar og skyrtur úr gegnsæju efni og kósí peysur.
Allt frekar 70´s og fínt.
Hér fyrir neðan er vídjóið og svo nokkrar myndir. Módelið í vídjóinu heitir Ali Lagarde og tónlistin er eftir Seabourne.
[vimeo]http://vimeo.com/19325690[/vimeo]Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.