Ný lína frá íslensku snillingunum í KronKron er væntanleg á næstunni. Skórnir eru komnir í búðir en sokkabuxurnar koma fljótlega.
Sokkabuxur frá KronKron eru nýjung sem ég hlakka til að sjá meira af. Mér finnst þær ótrúlega flottar og mjög í takt við það sem KronKron hafa verið að gera, litríkar og sérstakar.
Myndirnar eru teknar af Sögu Sig, ótrúlega flottar og töff!
Skóna má fá í netverslun KronKron og í búðinni.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.