123 Perfect CC cream er nýjung frá Bourjois. Það inniheldur þrjá liti sem vinna að því að jafna út litatóna í húðinni.
CC cream stendur fyrir Colour Correcting cream eða krem sem jafnar út litatóna húðarinnar.
Þetta nýja CC cream frá Bourjois hefur þann eiginleika að hafa þrjá litatóna sem hafa allir sitt hlutverk í að vinna á móti litatónum í húðinni sem við viljum ekki hafa svo sem roða, bauga og fl.
Appelsínuguli liturinn í kreminu vinnur á móti dökkum blettum eins og myndast oft undir og í kringum augun. Græni liturinn vinnur á móti roða og hvíti liturinn vinnur á móti blettum og ójöfnum í húðinni.
Litirnir sjást ekki í kreminu sjálfu, það lítur út eins og litað dagkrem.
Kremið gefur góðan raka – allt upp í 24 tíma og hefur sólarvarnarstuðul númer 15.
Ég er búin að vera að nota þetta krem síðustu daga og mér líkar mjög vel við það.
Ég setti það á mig í morgun eftir ræktina og var þess vegna mjög rjóð í andlitinu og það kom mér á óvart hversu vel þetta krem náði að draga úr roðanum! Maður finnur litina í kreminu vinna á móti ójöfnunum í húðinni.
Mér fannst ég ekki þurfa að nota hyljara eftir að hafa sett það á mig, mér fannst það draga vel úr dökku blettunum í kringum augun.
Það er létt á húðinni og endist vel yfir daginn. Hafa skal í huga að þetta er ekki farði heldur krem með lit í, svo að þetta er ekki alveg þekjandi en hefur þó einhverja þekju. Ég nota lit númer 32 Light Beige.
Mér finnst þetta ótrúlega gott til að nota dags daglega og ég mun alveg pottþétt halda því áfram!
CC kremið er létt og því er auðvelt að setja það á sig með fingrunum, en einnig er hægt að nota förðunarbursta til að bera það á.
Ég mæli með þessu fyrir alla sem vilja fá létt krem með ágætri þekju sem vinnur á móti ójöfnum litatónum í húðinni.
Svanhildur Guðrún sporðdreki sem fæddist árið 1993, sama ár og Spice Girls urðu til. Hún er förðunarfræðingur, útskrifuð úr Reykjavik Makeup School með næst hæstu einkunn úr sínum bekk. Svanhildur hefur óþrjótandi áhuga á förðun og öllu sem henni við kemur, en líka á heilsu, hreyfingu, útivist og Friends. “Friends þáttur á dag kemur skapinu í lag,” er hennar mottó > facebook.com/svanhildurmakeup