Bobbi Brown er snillingur þegar kemur að því að koma fram með nýjungar í línunni sinni en nýjasta afurð hennar er BB krem.
BB kremin verða sífellt vinsælli hjá snyrtivörufyrirtækjum og ég verð að viðurkenna það persónulega að kremin eru einfaldlega það skemmtilegasta sem ég hef prófað af snyrtivörum hingað til.
Að sjálfsögðu svíkur Bobbi ekki núna frekar en fyrri daginn. Ég prófaði nýja BB kremið í litnum fair. Ég er með mjög ljósa húð núna og liturinn blandaðist vel við minn húðlit.
Þetta krem jafnar út húðlitinn þinn, hjálpar til við að gera húðina minna feita (kremið dregur í sig olíuna úr húðinni), það gerir andlitið þitt bjartara, hjálpar til við að slétta úr hrukkum OG það sem mér finnst vera helsti kostur þess er að það inniheldur SPF vörn 35 og verndar andlitið gegn ágangi sólarinnar, útblæstri bíla og annari mengun.
Túban er þægileg, auðvelt er að bera kremið á sig, það klessist ekki og er mjög drjúgt þannig að það endist þér vel og lengi sem gerir þetta góð kaup. Frábært krem sem ég mæli hiklaust með.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=kjFDV01_uPU[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig