Það fer ekki framhjá neinum hver Victoria Beckham er enda varla hægt að fletta blaði án þess að hún sé þar í slúðurdálkunum um þá ríku og frægu ásamt eiginmanni sínum David.
Fáir vissu hinsvegar hver hin 25 ára gamla Alice Greczyn var fyrr en eftir að hún skrapp í grillpartý á Malibu og rakst þar á Victoriu. Victoria spottaði víst Alice þar sem hún lá í bikiní í sólbaði á sundlaugarbakkanum og bað Victoria David að mynda Alice fyrir sig.
Útkoman var góð og Victoria bauð henni strax vinnu fyrirsætu fyrir nýja gallabuxna -og sólgleraugnalínu VB fyrir sumarið 2011. Það voru sérkennilegar freknur á andliti Alice sem vöktu sérstaka athygli hennar.
Victoria segist alltaf með augun opin og að hún trúi á forlögin. Hún telur því að fundur þeirra Alice hafi verið örlög. Alice er náttúrulega falleg stúlka og eins og sniðin fyrir gallabuxnalínuna – og Victoria alsæl með að hafa uppgötvað hina ungu fyrirsætu.
Alice fór því heim eftir gott grillpartý með nýjan fyrirsætusamning í vasanum en Alice er fyrirsæta og leikkona.
“Það er skrýtið að búa í los Angeles, þér er boðið í grillveislu hjá vini og ferð þaðan sem andlit fyrir nýja fatalínu Victoriu Beckham,” sagði Alice við blaðamann þar vestra.
Hvort sem um örlög eða ekki er að ræða, þá er víst að Alice er afar heppin stúlka.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.