Nú gleðjast aðdáendur Marc Jacobs því kappinn var að senda frá sér splúnkunýjan ilm sem er skrítinn og skemmtilegur eins og sjálfur hönnuðurinn.
Flaskan minnir á blóm, fiðrildi, maríubjöllu sitthvað fleira en er fyrst og fremst lífleg, skemmtileg og gleðileg.
Marc Jacobs elskar að tala um liti og samspil þeirra eða tengingu við ilm og með þessum ilmi setur hann saman rauð ber, jasmínu og rekavið svo að útkoman er ferskur, djarfur og ljúffengur ilmur, svalur og vandaður í senn.
Hann valdi þrjú lykilorð til að lýsa ilminum – á ensku:
charming, chic and joyful
eða sjarmi, klassi og gleði í kvenlegum ilmi sem kemur skemmtilega á óvart og á ekki eftir að svíkja aðdáendur kappans.
_________________________________________
Hér sérðu upptöku af því þegar auglýsing fyrir ilminn var mynduð… fallegt og skemmtilegt!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=ZEfh1Hj4AJI[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.