Nú var að koma nýr farði frá Bourjois; 1 2 3 Perfect.
Farðinn veitir miðlungs matta áferð og 24 tíma raka.
1 2 3 Perfect dregur fram mikinn ljóma í húð og inniheldur þrjú litakorn sem vinna saman að því að jafna út húðlitinn og hylja bólur og roða.
- Gul litakorn sem hylja bletti og lýsa svæði.
- Lillablá sem draga fram ljóma og fríska upp á þreytta húð.
- Græn litakorn sem hylja roða í húð.
Farðinn var prófaður á 30 konum yfir fjögurra vikna tímabil en 97% þeirra gáfu honum grænt ljós.
Það sem er gott við 1 2 3 Perfect er að hann er mattur en á sama tíma léttur og veitir góðan raka. Vegna þess að hann er léttur þá nær húðin að anda sem ég kann sérstaklega vel að meta, þar sem að ég set hann á mig á morgnana og þríf hann ekki af fyrr en seint á kvöldin. Farðinn veitir líka verulega mjúka áferð, fæst í 9 litum og inniheldur SPF 10.
Mitt mat: Mjög góð lausn fyrir þær sem eru gjarnar á að fá bólur eða önnur útbrot og einnig fyrir þær sem vilja léttan farða sem eykur á ljóma húðarinnar.
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.