New York skvísan Pamela Love er skartgripahönnuður sem hefur slegið í gegn með mjög sérstökum og flottum skartgripum sem eru innblásin af náttúrunni, dýraríkinu, stjörnuspeki og töfrum svo eitthvað sé nefnt…
…Pamela Love vinnur skartgripi sína úr fjölbreyttum efnum, hún notar stundum kopar og leður en einnig 14-karata gull og sjaldgjæfa steina. Skartgripir hennar eru rokkaðir og hráir með pínu 70’s fíling og alltaf alveg svaaaðalega flottir.
Hér fyrir neðan getur þú séð nýjustu línu Pamelu Love en hún er frekar ýkt en mjög falleg.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.