Poppstjarnan Lily allen er aldeilis að gera það gott þessa dagana eftir að hún hætti að lita hárið bleikt og mæta haugfull á tónlistaviðburði.
Hin hæfileikaríka dama tók sig loksis saman, hætti að reyna að drekka alla undir borðið, breytti um mataræði, grennti sig, ásamt því að landa fyrirsætudjobbi hjá Chanel og er hún núna í auglýsingaherferð fyrir Chanel töskur -ekki slæmt…
Það nýjasta hjá henni er að hún er búin að gefa út sína eigin krúttlegu skartgripalínu sem á eflaust eftir að rjúka út hjá ungum aðdáendum hennar.
skartgripalínuna getur þú séð hérna…
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.