Við vitum allar hversu nauðsynlegt er að þrífa húðina vel á hverjum degi ef við viljum halda henni fallegri.
Algjörlega nauðsynlegt ef við notum farða, hyljara, púður og sólarpúður. Og líka þó við gerum það ekki því oft er svifryk og annað í loftinu sem sest í húðina og gerir hana stíflaða og óhreina.
Nivea Cleansing Mousse er ný vara frá hinu frábæra þýska fyrirtæki NIVEA. Þetta er þægilegur hreinsir sem hreinsar húðina mjög vel. Brúsinn er hvítur og blár og lítur hreinsinn út eins og hann sé í vökvaformi en hann breytist í froðu um leið og þú smellir á pumpuna.
Þú berð froðuna beint á andlitið og skolar svo af með vatni eða notar blautan þvottapoka.
Cleaning Mousse frá Nivea er einnig stútfullt af vítamínum fyrir húðina eins og E-vítamíni og Hydra-IQ sem verndar húðina fyrir óæskilegu áreiti ásamt því að hjálpa henni að viðhalda teygjanleika sínum.
Froðan er létt og gefur ferskan ilm en góður ilmur af hreinsivörum eru að mínu mati algjört nauðsyn. Cleansing Mousse frá Nivea hreinsar allan farða vel af húðinni, þú einfaldlega pumpar smá froðu í lófann og berð á andlitið. Skolar vel með volgu vatni og þurrkar vel. Hreinsirinn skilur húðina eftir tandurhreina, mjúka og ilmandi en hann er hægt að fá bæði fyrir þurra og venjulega húð.
NIVEA eru þekkt fyrir góðar og “budduvænar” vörur en þessi hreinsir er á frábæru verði sem ætti að henta fyrir alla.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.