Hin hæfileikaríka Gwen Stefani forsýndi nýja vorlínu 2010 L.A.M.B á New York Fashion Week.
Poppstjarnan segir að hún hafi fengið innblástur frá tónlistar og bíómyndum frá árinu 1980 en línan verður með sýruþvegnar gallabuxur og toppa í anda Flashdance.
Gwen er með kreppuna í huga en fötin kosta frá 45$.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.